Hvað er Ísland Panorama?What is Island Panorama
Welcome to the Website of Ísland Panorama
 
Ísland Panorama,is an independent human rights organization that works in combating racism, racial discrimination, xenophobia,extremist ideas and intolerance.

Our activities covers all measures needed to combat violence, discrimination and prejudice against persons or groups of persons on the grounds of their race, colour, language, religion, nationality or ethnic origin.

Ísland Panorama er  frjálst félag (NGO-Non Governmental Organisation)  sem styður fjölmenningu og fjölþjóðlegt samfélag með því að vinna markvisst gegn kynþáttafordómum.

Ísland Panorama hvetur samfélagið til þess að takast á við þau málefni sem tengjast fjölmenningu á réttlátan og sanngjarnan hátt og vinna að auknu umburðalyndi og skilningi milli fólks.

Félagið vill aðstoða innfædda og innflytjendur til þess að skilja og virða hvert annað og búa hlið við hlið án fordóma.  Andúð í garð þeirra sem við þekkjum ekki byggist oft á vanþekkingu sem getur valdið fordómum og í versta falli jafnvel hatri. Það þarf því að vinna markvisst að forvörnum til þess að á Íslandi  verði samfélag þar sem allir eru jafnir og engum mismunað vegna litarháttar, kynferðis, kynþáttar, trúarbragða, kynhneygðar, skoðana eða uppruna.

Ísland Panorama er frjálst félag sem vinnur markvisst gegn kynþáttafordómum á Íslandi.

Markmið Ísland Panorama:

  • vinna að auknum skilningi og gagnkvæmri virðingu á milli fólks af ólíkum uppruna sem búsett er á Íslandi.
  • vinna gegn fordómum sem byggjast m.a. á mismunandi uppruna, útliti og trúarbrögðum.
  • vinna að fræðslu og ráðgjöf m.a. með námskeiðahaldi, málþingum og ráðstefnum.
  • stuðla að bættri mannréttinda- og fordómafræðslu í grunnskólum og framhaldsskólum landsins.
  • skapa umræður um fordóma og vandamál þeim tengdum og auka skilning í samfélaginu á fjölmenningarlegum málefnum.
  • stuðla að upplýsingasöfnun til að auka yfirsýn yfir það sem gerist í samfélaginu varðandi málefni innflytjenda.
  • veita Alþingi og öðrum opinberum aðilum aðhald og ráðgjöf varðandi lög og reglugerðir sem snerta málefni samtakanna.
  • hvetja til rannsókna á málefnum innflytjenda á Íslandi.
  • stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda aðila sem tengjast málefnum samtakanna.

 

Með aukinni fræðslu er hægt að vinna í forvörnum og sporna fæti við auknum fordómum á Íslandi.  Samtökin eru að stórum hluta fræslusamtök sem munu standa fyrir námskeiðum, málþingum, ráðstefnum og vinnustofum um málefni tengdum markmiðunum sem nefnd eru hér að ofan.  Sérstök áhersla verður lögð á það að auka mannrrétindakennslu í grunn-og framhaldsskólum.  Samtökin munu einnig bjóða stjórnvöldum og sveitarstjórnum ráðgjöf og virkja uppbyggilega gagnrýni þegar þörf er á varðandi lög reglugerðir um málefni innflytjenda og annarra minnihlutahópa í samfélaginu.

Samtökin stuðla að því að upplýsa til þess að vekja samfélagið til umhugsunar um að mismunandi uppruni fólks er einmitt það sem við þurfum til að efla og auðga samfélagið.  Samtökin munu einnig nýta sér fjölmiðla til þess að koma boðskap sínum á framfæri.

Sjá hér veggspjaldið