LÖG - ÍSLAND PANORAMA
1. gr.
Heiti samtakanna er Ísland - Panorama, grasróta samtök sem styður fjölbreytni og berst gegn mismunun (Iceland Panorama – Multicultural organisation against discrimination). Starfssvæði þess er allt landið. Heimili þess er í Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur samtakanna er að styðja fjölmenningarlegt og fjölþjóðlegt samfélag og vinna gegn kynþáttafordómum og mismunun.
Markmið samtakanna er að:
- vinna að auknum skilningi og gagnkvæmri virðingu á milli fólks af ólíkum uppruna sem búsett er á Íslandi.
- vinna gegn fordómum sem byggjast m.a. á mismunandi uppruna, útliti og trúarbrögðum.
- vinna að fræðslu og ráðgjöf m.a. með námskeiðahaldi, málþingum og ráðstefnum.
- stuðla að bættri mannréttinda- og fordómafræðslu í grunnskólum og framhaldsskólum landsins.
- skapa umræður um fordóma og vandamál þeim tengdum og auka skilning í samfélaginu á fjölmenningarlegum málefnum.
- stuðla að upplýsingasöfnun til að auka yfirsýn yfir það sem gerist í samfélaginu varðandi málefni innflytjenda.
- veita Alþingi og öðrum opinberum aðilum aðhald og ráðgjöf varðandi lög og reglugerðir sem snerta málefni samtakanna.
- hvetja til rannsókna á málefnum innflytjenda á Íslandi.
- stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda aðila sem tengjast málefnum samtakanna.
3. gr.
Rétt til aðildar að samtökunum hefur áhugafólk um fjölmenningarlegt samfélag og baráttu gegn mismunun. Umsókn um aðild er yfirlýsing um stuðning við markmið samtakanna og þær hugmyndir sem samtökin grundvallast á (sbr. 2 gr.)
4.Stjórn skal skipa 5 einstaklingum(stofnandi sem er jafnframt formaður,ritari,gjaldkeri og 2 í vðbot) kosnir af stjórnin sjálfu hverju sinni . Stjórnin hittast fyrsta fimmtudag hvers mánaðar
5.Engin félagsgjöld er greitt en það má styrkja samtakanna frjálslega
Lög þessi öðlast þega gildi