Horft til framtíðar

Posted by Administrator (admin) on 24.03.2009
Fréttir >>

Stefnumótun og aðgerðaráætlun í málefnum innfytjenda samþykkt

19.03.2009 

 

Borgarstjórn samþykkti þann 17. mars síðastliðinn stefnumótun og aðgerðaráætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2009-2012 sem ber heitið „Horft til framtíðar". Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir að Reykjavíkurborg sé fyrsta sveitarfélagið hér á landi sem unnið hafi svo viðamikla og heildstæða stefnu á sviði innflytjendamála. Stefnan sýni þann mikla metnað sem Reykjavíkurborg hafi í málefnum nýrra íbúa borgarinnar.

Meginmarkmið stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum innflytjenda eru:
• Reykjavíkurborg leggi metnað sinn í að sinna öllum íbúum sínum af kostgæfni og koma til móts við ólíkar þarfir hvers og eins.
• Reykjavíkurborg fagni komu fólks frá öðrum löndum og með ólíkan bakgrunn.
• Reykjavíkurborg leitist við að tryggja miðlun upplýsinga um þjónustu, réttindi og skyldur eftir mismunandi leiðum til allra nýrra íbúa.
• Reykjavíkurborg vinni stöðugt að því að auka fjölmenningarlega færni starfsfólks borgarinnar sem sinnir móttöku og samskiptum við nýja íbúa.
• Reykjavíkurborg leiti allra leiða til að koma í veg fyrir fordóma og að íbúum sé mismunað vegna uppruna eða trúarbragða.

Stefnan er byggð á Mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar sem samþykkt var í borgarstjórn í maí 2006 og þeirri kortlagningu sem unnin var í málflokknum í verkefnastjórninni. Jafnframt er hún byggð á þingsályktun um framkvæmdaráætlun í málefnum innflytjenda sem samþykkt var á Alþingi í maí 2008 og stefnumótun Sambands íslenskra sveitarfélaga sem samþykkt var í byrjun árs 2009.

 Nýmælin við þessa stefnumótun eru að þjónusta í málefnum innflytjenda er nú komin saman í einu plaggi heilstætt fyrir borgarkerfið allt. Einnig að það sem betur má fara í málaflokknum er sett í farveg innan borgarkerfisins. Á þeim þætti er tekið í aðgerðaráætlunin og verkefni sett á ábyrgð einstakra sviða.

Margir einstaklingar hafa komið að starfi verkefnastjórnarinnar þann tíma sem vinnan hefur staðið yfir. Verkefnastjórnina skipuðu í upphafi Marsibil J. Sæmundardóttir sem jafnframt var formaður, Jórunn Frímannsdóttir og Svandís Svavarsdóttir. Með verkefnastjórninni störfuðu mannréttindafulltrúi Þórhildur Líndal og María Rúnarsdóttir frá Velferðarsviði sem var ráðin var verkefnastjóri. Í nóvember 2007 breyttist skipan verkefnastjórnarinnar og Sóley Tómasdóttir og Sif Sigfúsdóttir komu til starfa en Jórunn Frímannsdóttir og Svandís Svavarsdóttir létu af störfum. Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss kom til starfa með verkefnisstjórninni á sama tíma. Marta Guðjónsdóttir, Andri Óttarsson, og Falasteen Abu Libdeb tóku síðan sæti í verkefnastjórninni í apríl 2008.

 

Frá hausti 2008 var verkefnastjórnin skipuð að nýju og var Marta Guðjónsdóttir skipuð formaður og ásamt henni áttu sæti í verkefnastjórninni Falasteen Abu Libdeb, Zakaria Elias Anbari, Jóhann Björnsson og Páll Heimisson. Mannréttindastjóri, Anna Kristinsdóttir, starfaði frá hausti 2008 með verkefnastjórninni og Íris Björg Kristjánsdóttir var í október 2008 ráðin verkefnastjóri til að vinna að stefnumótuninni.

 

http://www.rvk.is/Portaldata/1/Resources/myndir/borgarstjorn/LOKAUTGAFA_STEFNUMOTUN.pdf

Last changed: 24.03.2009 at 20:13

Back

Comments

None Found

Add Comment