Ísland Panorama gefur út CD disk með fyrirlestri um staðalmyndir og fordóma |
| Posted by Administrator (admin) on 20.01.2009 |
Til viðbótar veggspjaldinu höfum við nú útbúið glærur (í Power Point), sem hafa verið brenndar á CD disk. Diskurinn hefur verið sendur á alla framhaldsskóla í landinu. Það er von okkar að efnið nýtist kennurum til að ræða við nemendur um staðalmyndir og fordóma, sem nokkuð ber á í umfjöllun um fjölgun fólks af erlendum uppruna á Íslandi. Kennurum er frjálst að velja úr einstaka glærur, eða bæta við eigin efni. Markmið okkar er að hvetja til málefnalegrar umræðu og styðja kennara til þess með því að dreifa glærunum og veggspjaldinu. Stefna okkar er einnig að reyna að heimsækja skóla, sem óska eftir því.
Verkefnið Inn við beinið erum við öll eins var styrkt af Dóms-og kirkjumálaráðuneytinu og Félagsmálaráðuneytinu sem veitti okkur styrk í tilefni Evrópuárs jafnra tækifæra: http://www.felagsmalaraduneyti.is/vefir/evropuar/
Last changed: 20.01.2009 at 09:16
Back