Nokkur þúsund ganga gegn kynþáttafordómum

Posted by Administrator (admin) on 18.09.2010
Fréttir >>

Nokkur þúsund manns tóku þátt í kærleiks- og friðargöngunni gegn kynþáttafordómum. Gengið verður frá Hallgrímskirkju niður á Ingólfstorg þar sem meðal annars verða haldnar ræður.

Þá mun bróðir kúbverska piltsins, sem flúði land ásamt föður sínum, halda ræðu.

Feðgarnir flýðu land eftir ofsóknir sem þeir vilja meina að grundvallist á kynþáttafordómum. Feðgarnir gátu ekki verið viðstaddir gönguna þar sem þeir eru enn staddir erlendis.

Að sögn bróðir piltsins þá snúa feðgarnir aftur heim í næstu viku

Last changed: 18.09.2010 at 15:33

Back