Skoðum okkar innra persónu

Posted by Administrator (admin) on 24.12.2010
Fréttir >>

Fordómar birtast okkur víða en þeir byggja á hræðslu, fáfræði og vanþekkingu fyrir hinu óþekkta. Fullyrðingar eins og "svartir eru latir", "pólverjar eru glæpalýður", "múslimar eru öfgafullir", og "gyðingar eru nískir" flokkast því sem fordómar þar sem einstaklingurinn sem lætur slíkt út úr sér notar þar vanþekkingu sína til að búa sér til fullyrðingu um heilan hóp manna sem telur margar milljónir.

Fæstir sem hafa fordómana vilja hins vegar gangast við því að hafa fordóma .Besta leiðin til þess, er að kynna sér fordómana og þekkja þá til þess að geta bent hinum fordómafullu á villur síns vega.Fordómarnir hafa í gegnum tíðina oft náð að tvístra heilu samfélögunum og verið orsakavaldur að ýmis konar óhugnaði sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir hefðu ólíku hóparnir haft skilning á hvor öðrum og sest niður rólega og rætt málin.

Fordómar eru stundum notaðir meðvitað af mönnum og stjórnmálaflokkum til að ná sínu fram í blekkingarleikjum þeirra við að ná atkvæðum fólks sem ekki veit betur og er Nasistaflokkur Hitlers sennilega þekktasta dæmið um það. En slíkar aðferðir hafa líka verið notaðar af ýmsum flokkum í seinni tíð sem sækjast eftir atkvæðum ákveðins hóps manna með því að ala á fordómum gagnvart öðrum hópi sem er þá persónugerður sem hluti hins illa.

Frægasta dæmið um þetta hin síðari ár er Jörg Haider og Frelsisflokkur hans í Austurríki sem komst í ríkisstjórn með því að ala á fordómum fólks gagnvart útlendingum og gyðingum.Líkt og með baráttuna gegn rasisma ber okkur skylda til þess að berjast gegn fordómum sem því miður eru mjög algengir á meðal fólks í dag.

Rasismi eða kynþáttahatur er sú skoðun að draga fólk í dilka eftir litarhætti þess og að vera með fyrirfram gefnar skoðanir á fólki í samræmi við það. Rasismi hefur átt sér langar sögulegar rætur og hefur fundist í öllum samfélögum Evrópu í gegnum tíðina.Birtingarmyndir hans eru margar en þær skelfilegustu án vafa eru helför gyðinga og aðskilnaðarstefnan í Bandaríkjunum og Suður-Afríku.

Rasismi hefur verið til staðar á Íslandi í langan tíma og var þeldökkum m.a. meinað að starfa á herstöð NATO í Keflavík allt fram til ársins 1971 og landið var ekki opnað fólki af öðrum litarhætti fyrr en seint á áttunda áratugi síðustu aldar. Rasistahreyfingar hafa verið starfræktar á Íslandi, oft með millibili, allt frá tímum nasista og hér á landi fyrirfinnast nokkrar slíkar hreyfingar enn þann dag í dag.

Rasismi er það versta þjóðfélagsmein sem til er á Íslandi í dag og hefur hingað til leitt til aððsúgs og árása á fólk vegna litarhátts þess sem og ýmis konar útskúfunar vegna duldra fordóma.Rasismi er nokkuð innbyggður í fólk á Íslandi sökum þess hve nýlega Ísland er orðið að fjölmenningarsamfélagi og ber að minnast á viðhorf fólks um svörtu fjallkonuna sem fékk ekki þjóðbúninginn leigðann fyrir nokkrum árum sökum þess að hún þótti ekki lýsa imynd Íslands nægjanlega vel.

Rasisminn á sér einnig nokkra undirflokka svo sem útlendinga andúð, menningarhatur, trúarhatur og eru þessi fyrirbrigði oft mun meira áberandi en hinn hreinræktaði rasismi hér á landi. Rasismi á þó engan rétt á sér í raunveruleikanum enda er stefnan afsönnuð vísindalega og því aðeins heimska að vera með fyrirfram gefnar skoðanir á fólki eftir litarhætti þess.

Á meðan enn finnast rasistar í samfélaginu er lítið annað hægt en að berjast gegn þvi og kremja rasismann undir hæl áður en hann nær að eitra út frá sér og skemma samfélagið.Fordómar eru ekki bara augljós hatur, verðum að átta okkur á því að við erum uppfull af fordómum þegar við segjum setningar eins og."Ég er ekki haldin/n kynþáttarfordómum en ég myndi ekki vilja að dóttir mín giftist svörtum manni"

Fordómar eru ekki bara áróðursfullar opinberar hatursaðgerðir.Þeir eru ekki síður meiðandi og skemmandi.Og er engum í hag að bera þetta meðsérVið erum hrædd við að upplifa áður óþekktar tilfinningar, Við erum hrædd við Viðbrögð okkar gagnvart því sem er framandi.

Við óttumst að hið óþekkta raski jafnvægi okkar eða umhverfi.Fordómar vinna gegn okkur sjálfum. Við þurfum ekki að vera hrædd við útlit fólks.Við þurfum ekki að vera hrædd við framandi tungumál og menningu, Ólikar skapgerðir eða geðheilsubresti.Fordómar hafa veruleg skaðleg áhrif á Heilsu og liðan, Jafnt þeirra sem þeir beinast gegn og hinna sem bera þá.Það er því þjóðarhagur að okkur takist að vekja sem flesta til vitundar um eðli þeirra og orsakir,hvernig þeir birtast og hvaða afleiðingar þeir hafa.

Við þurfum að virða allt fólk því að allar manneskjur koma okkur við.Við sýnum fólki virðingu með því að gefa hverjum og einum tækifæri til að kynna sig sem einstakling og taka honum eða henni með opnum huga án þess að dæma. Fordómar eru hættulegir og felst í því þegar þeir fara að hafa áhrif á hegðun okkar og leiða til mismununar.

Fordómar eru því ekki skaðlausar skoðanir, heldur hafa þeir bein áhrif á líf og líðan þeirra sem fyrir þeim verða. En það er von, því fordómar eru hvorki meðfæddir né eðlilegt atferli mannsins. Þeir eru lærðir.En það má lika læra að losna við þá. 

Last changed: 24.12.2010 at 17:20

Back