Af hverju Ísland Panorama
Ísland Panorama eru grasrótarsamtök sem standa vörð um fjölbreytni og vinna gegn mismunun. Þau hafa það að markmiði að beita sér í baráttunni gegn fordómum, útlendingafælni/hatri og hverskonar mismunun á grundvelli trúar, útlits eða uppruna. Til þess að ná settu marki hyggjast samtökin Ísland Panorama einbeita sér að því auka skilning og efla gagnkvæma virðingu milli fólks af ólíkum uppruna, sem búsett er á Íslandi. Samtökin eru opin öllum þeim sem hafa áhuga á málefninu og hafa löngun og vilja til að vinna að fyrrgreindum markmiðum. Samtökin eru óháð öllum stjórnmálaflokkum og stjórnmálastefnum. Þau hyggjast fjármagna starfsemina með því að leita eftir styrkjum jafnt frá einkaaðilum sem opinberum sjóðum.
Hvernig starfsemi?
Að byggja upp gagnlegan upplýsingabanka um málefnið sem er aðgengilegur öllum
Að hafa nokkurs konar gagnasafn fyrir skóla og t.d. kynna "skólar án rasisma" verkefni sem kynnt var í Belgíu fyrir nokkrum árum og náði góðum árangri víða um Evrópu.
Að vinna með og aðstoða íslenska unglinga við að sýna umburðarlyndi og skilja fjölbreytni og hvað hún þýðir fyrir þau.
Að stunda rannsóknir tengdar málefninu
Að undirbúa og bjóða ókeypis fræðslu eða námskeið og taka þátt í ýmsum gagnlegum rannsóknum hérlendis og erlendis.
Að vera í samstarfi við Norðurlöndin og stofnanir Evrópuráðsins ásamt samstarfsstofnunum innan Evrópusambandsins.
Að vera í samstarfi við innlendar stofnanir sem eru beint eða óbeint tengdar málefni innflytjenda.
Að hjálpa fyrirtækjum, stofnum, hinu opinbera, samtökum og öðrum við að þróa og bæta stefnu sína varðandi fjölmenningaleg viðskipti og samskipti almennt.
Að vera í samstarfi við önnur félög sem styðja og vinna að jöfnum réttindum í þjóðfélaginu.
Að vinna að því í samvinnu við fjölmiðla og aðra að auka og efla fræðslu fyrir land og þjóð um fordóma og hvernig hægt er að fyrirbyggja þá.
Sjá hér veggspjaldið “Inn við beinið erum við öll eins”